Flatus lifir enn !
Myndir
29.01.2010 08:54:33 / mamman

Af grænmetishundum og fleiru

Langt síðan við höfum skrifað hér, og þó hefur ýmislegt á daga okkar drifið.
ekki margt spennandi samt. sérstaklega ekki margt sem er í frásögur færandi,
en samt...

Einn fagran sunnudagsmorgunn sat fjölskyldan að snæðingi.
Mamman hafði borið á borð hinar ýmsu kræsingar sem aðeins
eru boðnar á slíkum hátíðisdögum. Þar á meðal var dýrindis eplasafi
sem mamman hafði keypt nokkrum dögum áður og sparað fyrir
tilefnið. Emblan tekur stóran gúlsopa, hryglir sig og segir: ,,mamma,
það er lemúrabragð af þessu!"

Annan sunnudagsmorgunn voru börnin með móður sinni í kirkjunni,
eins og svo oft áður. Litlu grísirnir skottast saman um kirkjuna á meðan
mamman undirbýr sunnudagaskólann. Þar sem þau leiðast hönd í hönd á
gangingum gengur upp að þeim eldri kona. Konan sú brosir til barnanna
og upp hefjast þessar samræður milli hennar og Emblu:
Gömul kona: Voðalega eruð þið fín. Eruð þið tvíburar?
Emblan *hneyksluð*: Ehhhhh... nei... hann er í skyrtu en ég er í kjól!

Foreldrar Eggertsins hafa tekið að sér að vera fósturforeldrar fyrir
hund. Grísunum þremur finnst þetta yfirmáta spennandi og hlökkuðu
þau mikið til að hitta kvikyndið (sem ber nafnið Bella) í fyrsta sinn í gær.
Teklan: Mamma... hvernig hundur er Bella?
Mamman: Ég held hún sé blanda af íslenskum og border collie
Teklan *springur úr hlátri*: HAHAHAHAHAHA!!!... Brokkólí?!!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 11:57:08 / Eggert Egg

Sorglegt...


Ég var að gefa börnunum mínum morgunmat um helgina og af því að það var helgi fengu þau choko pops....held ég það heiti...(súkkulaði rice krispies með apa utaná).

Embla virðir fyrir sér kassann og lætur svo flakka eina þá sorglegustu setningu sem ég hef heyrt :

Embla : "Pabbi, apinn á enga vini.....bara flugur".

Svo í öðrum óskyldum matmálstíma þá segir hún við mig :

Embla : "Pabbi, þú ert besti vinur minn, þú ert prinsinn minn".

Þá hugsaði ég til grey apans sem á enga vini og á í raun ekki neitt nema flugurnar og var þá bara þokkalega þakklátur og sáttur við mitt :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2009 11:40:35 / mamman

Jólapælingar

Teklan okkar, sem ekki er nema sex ára, ætlar ekki að láta plata sig þessi jól. 
reyndar hefur verið mjög erfitt að plata hana undanfarin ár... hún hefur aldrei almennilega gleypt við þessum jólasveinapælingum. hún var ekki nema tveggja ára þegar hún hvíslaði í eyra móður sinnar á jólaballi: ,,mamma, þetta er ekki jólasveinn, þetta er bara kall í búning." og eftir það varð ekki aftur snúið.

Nú í sumar ákvað barnið svo að ræða þessi mál við foreldra sína og tilkynnti þeim hátíðlega að hún tryði nú ekki á jólasveina og að hún gerði sér fyllilega grein fyrir því að það væru foreldrarnir sem gæfu gjafir í skóinn. Foreldrarnir urðu að vonum hissa og einnig ofurlítið leiðir yfir því að barnið skyldi ekki vilja taka þátt í leiknum en tóku þessari játningu samt með stóískri ró. 
En svo komu áhyggjur Teklunnar. Skyldi hún aldrei meir fá glaðning í skó? 
Foreldrarnir sannfærðu hana um að auðvitað fengi hún enn í skóinn, en hún þyrfti samt að passa sig að vera ekki að ræða jólasveinamálin við börn sem trúa á hann því börnum þyki gaman að trúa á slík ævintýr. Vantrúuð hristi hún höfuðið og sagði: ,,en foreldrar eiga að segja börnum sínum satt!"

allavega... spólum áfram nokkra mánuði. þá átti þetta samtal sér stað:
Teklan: Myndi maður kannski fá kartöflu í skóinn ef maður er með dónaskap?
mamman: af hverju ætti maður að fá í skóinn ef maður trúir ekki á þann sem gefur í skóinn?
Teklan: ég trúi alveg á einn sem gefur í skóinn
mamman: nú? hvern þá?
Teklan: ÞIG!

Emblan hefur líka verið að velta jólunum fyrir sér.
mamman: Hvað gera jólasveinar?
Emblan: þeir segja hó - hó - hó
mamman: og eitthvað fleira?
emblan: svo hringja þeir líka bjöllu kling - kling - kling

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2009 09:02:26 / mamman

Tjáskipti

Nú eru allir grísirnir þrír orðnir fullfærir um að eiga eðlileg tjáskipti við mann og annan. Teklan er farin að slá um sig með löngum flottum orðum, málsháttum og orðatiltækjum, Emblan er orðin heimspekingur mikill sem veltir fyrir sér orsökum og afleiðingum í þessum heimi og Tröllið er farið að setja saman skiljanlegar setningar úr fleiri en tveimur orðum. 

nú skal hér greint frá þremur samtölum sem áttu sér stað á heimilinu um daginn:

Pabbinn þurfti að skerast í leikinn eftir að Tröllið hafði læstu klónum í hári systur sinnar, settist á höfuð hennar og hossaði sér þar þangað til Emblan fór að orga.
Eftir stutta setu á skammarstónum þar sem drengurinn átti að hugsa sitt ráð fer hann beint til Emblunnar:
Tröllið: Embla mín, babbi gamma minn!
Emblan: Já.
Tröllið: Embla.... BABBI GAMMA!
Emblan: Já, baja þi, ekki mi.

Teklan á það til að verða pirruð og reið ef móðirin gengur ekki að öllum hennar óskum. Þá á hún það líka til að nota samlíkingar sem margar hverjar eru undarlegar mjög.
Teklan: Mamma ertu ekki að koma?
Mamman: Jú, bíddu augnablik, ég er að koma.
Teklan: Ef ég þarf að bíða svona lengi þá breytist ég bara í stjúpfeitan fisk!

Það var skipulagsdagur í leikskólanum og Emblan og Tröllið fengu þess í stað að fara með móður sinni í vinnuna. 
Mamman: Jæja krakkar, eruð þið bara í vinnunni með mömmu?
Emblan: Mamma, þetta er ekki vinna, þetta er kirkja!


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.10.2009 12:42:22 / Eggert Egg

Sexehhhh....

Rakst á þessa grein í dv.is
http://visir.is/article/20091013/LIFID01/735104407

mynd

Jennifer Lopez.

Á meðfylgjandi myndum má sjá að Jennifer Lopez, 39 ára, er vel rökuð undir höndunum. 

Söngkonan dansaði eins og hún ætti lífið að leysa þegar eiginmaður hennar, Marc Anthony, söng á leikvangi í Miami í gærkvöldi.

Vel rakaðan handarkrika Jennifer má skoða á meðfylgjandi myndum.

.....ég vil bara endurtaka síðustu línuna aftur fyrir þá sem misstu af henni :

"Vel rakaðan handarkrika Jennifer má skoða á meðfylgjandi myndum".

Er ekki allt í lagi með fólk ???


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2009 16:45:37 / Eggert Egg

Tattoo


Heyrði skemmtilega tattoo sögu í steggjapartýi sem ég fór í síðastliðinn laugardag.

Tveir félagar ákveða að skella sér á djammið og sletta ærlega úr klaufunum. Í miðju djamminu ákveða þeir í einhverju alsherjar flippkasti að þeir skuli sko fá sér tattoo.

Annar þeirra vaknar daginn eftir, með fullorðinsveikina(þynnkuna) og röltir inn á klósett  og man þá eftir því í móðu að þeir félagarnir fóru á tattoo stofu kvöldið áður. Hann leitar og finnur blessað tattooið.

Fyrir ofan pílu sem bendir ofan í rassaskoruna á honum stendur skrifað skýrum stöfum "Frátekið fyrir Gunnar".

Það fylgdi sögunni að þessi maður er í dag giftur tveggja barna faðir.

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.09.2009 10:46:56 / mamman

Litli sögumaðurinn

Tröllið er í óða önn að læra ástkæra ylhýra. Foreldrarnir fylgjast spenntir með, enda virðist undrabarnið læra hið minnsta eitt nýtt orð á dag. Þótt Tröllið eigi enn eftir tvo mánuði í það að verða tveggja ára er hann farinn að spjalla, skammast og segja sögur á einstakan og líflegan hátt með sínum tveggja og þriggja orða setningum. Í gær sagði hann móður sinni sögu frá eigin brjósti og var sagan sú lengsta merkingarbæra frásögn sem Tröllið hefur látið frá sér fara. Var sagan á þessa leið:

,,Amma Byssa bodlinn... afa jáppa ömmu... æ-æ bodlinn"

(ísl. þýð. Amma Sibba datt í pollinn. Afi hjálpaði ömmu sem meiddi sig þegar hún datt í pollinn)


Í morgun hélt sögustundin áfram þegar Tröllið sagði frá þessu:

,,Úllu úti... bíta ömmu... nei, úllu, æddusu... saju but. Úllu obba bodlinn"

(Ísl.þýð. Úlfurinn er úti að bíta ömmu. Nei, úlfur, hættu þessu. Farðu burt! Úlfurinn hoppar í pollinum)

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2009 09:14:16 / mamman

Ný orðatiltæki

Snemma morguns:
mamman: Jæja fjölskylda, nú þurfum við að drífa okkur á fætur
Teklan: Þú verður bara að segja: ,,Skíttu í lófana", þá drífum við okkur!

Seinna sama dag:
Emblan: mamma, er ég búin að stækka mikið?
mamman: já, einu sinni varstu bara pínulítið pons, en núna ertu orðin stór stelpa.
Emblan: ég finnsti ég átti fá verðlaun.

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2009 21:08:28 / mamman

Ekki svo fyndið grín

Emblan er nýfarin að uppgötva sögur og brandara af ýmsu tagi. Í gær bað hún móður sína að segja sér eins og eina sniðuga grínsögu. Samskipti mæðranna voru sem hér segir:

mamman: Einu sinni voru tveir tómatar að labba yfir götu...
Emblan: ... neeeiii... tómatar getir ekki labbið
mamman: ehhhh... einu sinni voru tvær mýs...
Emblan: ... og líka Andrésar
mamman: Ha?
Emblan: Mikki mús og Andrés önd voru veiða fíl...
mamman: Ha?
Emblan: ...og þeir klípuðu fílinn!

Daginn eftir átti þessi sena sér stað við kvöldmatarborðið:
Emblan: Á ég segja ykkur bðandaða?
mamman: Já, endilega
Emblan: Sko... einu sinni voru tveir tómatar labbið yfir götu *hlær dátt*
Teklan: ... og þá kom bíll og keyrði yfir annan tómatinn
Emblan *tekur um höfuð sér í skelfingu*: ÓNEI!!!

Í sama kvöldmatartíma:
Teklan: Ég fékk rosa góðan mat í skólanum í dag
mamman: jæja, það var nú gott
Teklan: en þegar ég var í leikskólanum, þá var stundum ógeð
pabbinn: ha? af hverju segir þú það?
Teklan: játs, sko... þá vorum við stundum látin borða rauða engisprettu! Það er ÓGEÐ!!!
mamman: ha?
Teklan: Jahá! ég er sko ekki að plata
pabbinn: þú ert örugglega að meina rauðsprettu. það er fiskur, ekki engispretta.
Teklan: Jú víst er það engispretta, þú veist bara ekkert um hvað ég er að tala!

Annars er það að frétta af fjölskyldunni að Tröllið settist á koppinn í fyrsta skipti í dag. Í tæpt ár hefur mamman á heimilinu reynt að fá blessað barnið til að þó ekki væri nema bara setjast á koppinn, en án árangurs. Drengurinn hefur litið koppinn hornauga frá fyrstu tíð og rekið upp ógnarleg hræðsluóp í hvert skipti sem móðirin hefur ýtt drengnum í áttina að koppnum. Í dag vannst sigurinn. Í dag settist Tröllið okkar á koppinn og brosti út að eyrum því hann var svo ánægður með sig. Foreldrarnir fögnuðu ótt og títt og lofuðu þetta undraverða framtak einkasonarins.
Nú er drengurinn orðinn þaulvanur koppafari og bað því um að fá að setjast aftur á ferlíkið fyrir svefninn. Jújú, foreldrarnir héldu nú að það ætti að vera hægt. Þarna sat Tröllið og glotti, bað um ,,high five" og kossa fyrir afrekið og stóð svo upp. Og viti menn... ofan í koppnum hvíldu sjö litlir blautir dropar!

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2009 09:55:54 / Eggert Egg

Er ég að misskilja eða....

er þetta rétt skilið hjá mér.

Við fokkum okkur upp með erlendu lánsfé(ásamt fleiru), skuldum öllum pening. Og til þess að laga það ætlum við að taka lán...

En ekki bara eitthvað smá lán, heldur lán sem hækkar lánshæfismatið svo við getum tekið annað og ennþá stærra lán....meikar þetta einhvern sens?

Við Íslendingar erum nú pínu spes, er það ekki :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.07.2009 14:37:39 / Eggert Egg

100.000

Fjúff, þetta er nú meira, hver ætli verði gestur númer hundrað þúsund á síðunni minni góðu?

Sá góði gestur fær ávísun á frían rúnt niður Laugaveginn og kanski eins og einn barnaís í tilefni dagsins.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.05.2009 18:39:38 / Eggert Egg

Alltaf lærir maður eitthvað nýtt


Tekla tjáði mér það við matarborðið að Hákérling væri Hákarl með varalit, sítt ljóst hár og spöng.

Fyrst það er til Hákarl hlýtur að vera til Hákerling...það gefur auga leið.

Augljóst mál.

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.05.2009 12:54:03 / Eggert Egg

Mikill heiður

Embla og amma Sibba (mamma Eggertsins) fóru í Húsdýragarðinn í gær. Fengu þær að fylgjast með 2 lömbum koma í heimin, Embla fékk að nefna þær og nú eru lömbin Embla og Tekla kát og hress, hoppandi í Laugardalnum.

Ætli fjölskyldan skelli sér í ekki í heimsókn í bráð svo systurnar geti kíkt á ferfættar nöfnur sínar.

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/05/06/saudburdur_hafinn_i_laugardalnum/

Það þarf varla að taka það fram að Emblu fannst þetta geðveikt....

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2009 17:02:13 / mamman

Að gera úlfalda úr mýflugu

Var að sækja börnin á leikskólann áðan.
Veðrið var yndislegt, milt og gott, en þó nokkur rigning.
Við Teklan þrömmum í átt að bílnum og Emblan skottast á eftir okkur. Þar til skyndilega hún stöðvar för sína og hljóðar upp yfir sig.
Ég lít við og sé að hún bograr yfir gangstéttinni. Svo lítur hún á mig og segir: ,,vá mamma!"
Áhugasama mamman sem ég er fetar mjúkum skrefum í átt að barninu. Ég beygi mig niður til hennar og segi blíðlega: ,,hvað er að ástin mín?"
Blessað barnið lítur upp í forundran með augum á stærð við undirskálar. Vísifingur hægri handar beinist að einhverju á gangstéttinni og Emblan mín segir skjálfandi röddu: ,,zetta e dlönga!".
Ég lít niður og sé þar örlítinn ánamaðk liðast áhyggjulausan fyrir framan okkur.
Ég brosi til barnsins og reyni að útskýra fyrir henni að þetta sé nú sárameinlaust kvikyndi sem kallist ýmist ormur eða ánamaðkur.
Hún var mér ekki sammála.
Næstu mínútur fóru í rökræður okkar í millum um það hvort hin mikla kynjavera hefði í raun verið ánamaðkur eða dlönga.
Ég held ég hafi á endanum játað mig sigraða.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2009 20:33:07 / Eggert Egg

"3 years well spent" segi ég (lesa linkinn annars er bloggið óskiljanlegt)

Menn hafa mismunandi áhugamál, reyndar grunaði mig þetta með að hárin dragi að sér nafnalóna og safni þeim inn í naflann í þar til gert forðabúr...til hvers veit ég ekki. Ég ætti kanski að spyrja Georg Steinhauser út í það...það myndi þá þýða allavegana 3ja ára rannsóknir til viðbótar.

http://mbl.is/mm/folk/frettir/2009/02/28/leyndardomar_naflalonnar_leystir/?ref=fpverold


Það sem sló mig hinsvegar meira og ég hafði enga hugmynd um er að :
"Ný föt geti misst allt að því einum þúsundasta af þyngd sinni inn í naflann á einu ári. "

Spurning hvort ekki sé hægt að spinna lopa úr þessu og endurnýta. Prjóna peysu...gera úr þessu skemmtilega hringrás :)



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  46  Alls: 116333
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti